Um Reykjanes
Reykjanes er í Ísafjarðardjúpi við aðalveginn. Þar er bæði flugvöllur og bryggja. Ákaflega víðsýnt er í Reykjanesi, má þar nefna að öll Snæfjallaströndin blasir við svo og Langadalsströnd og Borgarey.
Á Reykjanesi eru margar góðar gönguleiðir og örnefni staðarins eru merkt. Morgun og kvöldkyrrð er í Reykjanesi, fjölbreytt fuglalíf og selir sjást í fjörum.
Í Reykjanesi er mikill jarðhiti og eru öll húsakynni staðarins hituð upp með hveravatni. Sundlaug staðarins er 50 x 12,5 metrar og er staðsett fyrir neðan hótelið. Hún er einnig hituð upp með sjálfrennandi heitu vatni. Umhverfis mestan hluta laugarinnar er góð skjólgirðing. Þá er sólpallur og gufubað við laugina ásamt ákaflega vinsælum bekkjum sem þægilegt er að sitja á ofan í vatninu. Búningsklefar eru rétt við laugina með góðum sturtum. Sundlaugin er alltaf vel heit og segja má að vegna hennar telji þeir ferðalangar sem hingað koma, Reykjanes vera einn áhrifaríkasta hvíldarstað á Vestfjörðum, því þreytan og stressið hverfur í heita vatninu og hreina loftinu.