Sundlaugin
Sundlaug staðarins er 50 x 12,5 m og er staðsett úti fyrir.
Hún er einnig hituð upp með sjálfrennandi heitu vatni. Umhverfis mestan hluta laugarinnar er góð skjólgirðing. Þá er sólpallur og gufubað við laugina ásamt ákaflega vinsælum bekkjum sem þægilegt er að sitja á ofan í vatninu.
Búningsklefar eru rétt við laugina með góðum sturtum.
Sundlaugin er alltaf vel heit og segja má að vegna hennar telji þeir ferðalangar sem hingað koma, Reykjanes vera einn áhrifaríkasta hvíldarstað á Vestfjörðum, því þreytan og stressið hverfur í heita vatninu og hreina loftinu.
