Fundir - Námskeið
 |
Í austurálmunni er mjög góð aðstaða fyrir ráðstefnur og fundi.
Á efri hæð er einn stór salur með marga möguleika á uppákomu, þá eru þrír aðrir salir á sömu hæð, hver með sína sérstöðu eftir þörfum,
einn er venjulegur fundarsalur,
annar er með verkefnaaðstöðu og sá þriðji er með hljóðeinangraða vinnuaðstöðu fyrir hvert vinnuborð.
Þá er aðstaða fyrir lítinn fund með sérstöku vinnuherbergi.
Á neðri hæð austurálmunnar er salur sérstaklega hentugur fyrir flutning á tónlist, ásamt því að vera danssalur með tengingu við vínstúku sem er inn úr salnum.
Þá er á þessari sömu hæð kennslueldhús með bakherbergi.
Á þessari sömu hæð er einnig fundarherbergi með tveimur bakherbergjum og vinnuherbergi, hentugt fyrir stjórnendur ráðsstefna og námskeiða.
Mannfagnaður tengdur íþróttum getur haft not fyrir íþróttasalinn, sem er þokkalega tækjum búinn.
Fyrir tuttugu og fimm manna hóp er hægt að bjóða upp á sér aðstöðu með gistingu, fundarherbergi, setustofu, eldunaraðstöðu og snyrtingum, þar sem öll aðstaðan er sér á báti.
|