Ferðaþjónustan Reykjanesi við djúp
                                                             Reykjanes við djúp

Heim           Um Reykjanes           Staðsetning           Samband           Ferðamáti          

Ættarmót

Mjög vinsælt er að halda ættarmót á Reykjanesi, aðstaðan hér er mjög góð, tjaldsvæðin nálægt byggingunum, hægt að fá gistingu á Hótelinu, aðgang að sundlauginni og svona má lengi telja.

Það má segja að Reykjanes sé ættarmótsstaður landsins.
Þeir sem halda ættarmót í Reykjanesi þurfa að hafa eftirfarandi í huga:

  • Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu á laugardagskvöldi er skilyrði.
  • Þeir sem óska eftir gistingu á Hótelinu, hvort heldur er svefnpoka eða uppábúið hafa samband við hótelið beint varðandi bókanir.
  • Hótelið tekur ekki á neinn hátt þátt í skráningu á ættarmót, eingöngu gistingu.
  • Ganga þarf frá pöntun á sal með góðum fyrirvara og ákvarða hvernig hann á að vera.
  • Önnur þjónusta sem Reykjanes bíður upp á þarf að ákvarðast og ganga frá.
  • Ferðaþjónustan Reykjanesi er með vínveitingaleyfi, og þarf því sérleyfi hjá staðarhaldara til að hafa ,,eigið" áfengi í sal.
  • Ferðaþjónustan Reykjanesi er með skemmtanaleyfi.
  • Ef halda á brennu þarf að sækja um brennuleyfi til lögreglu á Ísafirði.
  • Aðstöðu til að skrá inn á mótið, þarf að taka fram áður.
  • Hljóðkerfi, skjávarpi og annað sem þarf að nota þarf að athuga fyrirfram.

    Allt það sem talið er hér upp og þarf að hafa í huga fyrir mót er til þess eins að hægt sé að undirbúa hlutina þannig að ekki komi upp það ástand að allt sé gert á síðustu stundu. Þannig að hafið í huga að þetta þarf að liggja fyrir nokkru áður en mótið er haldið. Vinsamlega hafið samband við Reykjanes til að fá nánari upplýsingar um hvern lið.
  • Íslensk ÚtgáfaEnglish Version

    Upplýsingar um dvöl í Reykjanesi

    Hér getur þú fræðst um starfsemi Ferðaþjónustunnar, skoðað myndir af aðstöðunni í Reykjanesi og kynnst staðnum og nágrenni í máli og myndum.



    rnes.is  .is 

    Tölvupóstur
    Ferðaþjónustan Reykjanesi
    Sími:456-4844 Símbréf:456-4845

    Heim           Um Reykjanes           Staðsetning           Samband           Ferðamáti