Hvernig kemst ég í Reykjanes
Ef þú ert á bíl þá er einfaldast að keyra, það er ekki nema u.þ.b. 4 tíma akstur úr Reykjavík og tæpir 2 frá Ísafirði.
Einnig er hægt að athuga hvort Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar eru á ferðinni frá Ísafirði.
Ef um hóp er að ræða þá er skemmtilegast að fljúga á Ísafjörð og fá bát inn í Reykjanes.
Einnig getur borgað sig að taka leiguflugvél, hér er flugvöllur og Landsflug er tilbúið að skjótast hingað.
Einnig geturðu kynnt þér fjarlægðir á síðunni "Vegalengdir en þar eru vegalengdir frá helstu stöðum landsins til þessarar paradísar sem Reykjanes er.
Sjáumst...
|