Ferðaþjónustan Reykjanesi við djúp
                                                             Reykjanes við djúp

Heim           Um Reykjanes           Staðsetning           Samband           Ferðamáti          

Árshátíðir, fundir og skemmtanir.

Eitt af því betra sem fyrirtæki og aðrir gera er að koma sér úr erli þéttbýlis og einangra sig úti í sveit til þess að ná saman og skemmta sér, einnig gott fyrir klúbba og félagasamtök að taka sig saman og kíkja í Nesið og gera sér dagamun. Hvað er skemmtilegra en að koma samstarfsfólki á óvart og senda það í flugvél í óvissuferð, á Reykjanesi er flugvöllur sem Dornier flugvélar sem taka 19 manns geta lent á. Af flugvellinum er 10 mínútna gangur á hótelið þar sem stærsti heiti pottur landsins býður eftir því að verða notaður, síðan er veislumáltíð og meira sund og fjör og gleði.

Nú eða þá að koma og halda fund í ráðstefnusalnum hjá okkur sem tekur yfir 100 manns í sæti, fullt af herbergjum í hópaverkefni og þemaverkefni, hægt að setja upp námskeið þar sem hópefli og samheldni eiga að ráða ríkjum.

Hér er sítengt Interent þar sem hægt verður að kíkja á póstinn, fylgjast með stöðunni á heimsmálunum o.fl.

Úr Reykjavík er um 4 tíma akstur í Reykjanes, ef um rútu er að ræða þá er verið að tala um 5 tíma með einu stoppi, síðan þegar komið er þá býður flott smáréttahlaðborð og stærsti heiti pottur landsins um 50 metra langur.

Því ekki að kíkja á kosti þess að koma í Reykjanes og ná hópnum saman, það er ódýrara en þig grunar.
Íslensk ÚtgáfaEnglish Version

Upplýsingar um dvöl í Reykjanesi

Hér getur þú fræðst um starfsemi Ferðaþjónustunnar, skoðað myndir af aðstöðunni í Reykjanesi og kynnst staðnum og nágrenni í máli og myndum.



rnes.is  .is 

Tölvupóstur
Ferðaþjónustan Reykjanesi
Sími:456-4844 Símbréf:456-4845

Heim           Um Reykjanes           Staðsetning           Samband           Ferðamáti