Ferðaþjónustan Reykjanesi við djúp
                                                             Reykjanes við djúp

Heim           Um Reykjanes           Staðsetning           Samband           Ferðamáti          

Reykjanes í Ísafjarðardjúpi

Reykjanes er við Ísafjarðardjúp, 17 km frá aðalveginum. Þar er bæði flugvöllur og bryggja. Ákaflega víðsýnt er í Reykjanesi, má þar nefna að öll Snæfjallaströndin blasir við svo og Langadalsströnd og Borgarey.

Á Reykjanesi eru margar góðar gönguleiðir og öll örnefni staðarins eru merkt. Morgun og kvöldkyrrð er í Reykjanesi. Fjölbreytt fuglalíf og selir sjást oft í fjörum.

Í Reykjanesi er mikill jarðhiti og eru öll húsakynni staðarins hituð upp með hveravatni.Sundlaug staðarins er 50 x 12,5 m útisundlaug. Hún er einnig hituð upp með sjálfrennandi heitu vatni. Umhverfis mestan hluta laugarinnar er góð skjólgirðing. Þá er nýr sólpallur við laugina nýtt gufubað og sturta ásamt ákaflega vinsælum bekkjum sem þægilegt er að sitja á niður í vatninu. Búningsklefar eru rétt við laugina með góðum sturtum. Sundlaugin er alltaf vel heit og segja má að vegna hennar telji þeir ferðalangar sem hingað koma, Reykjanes vera einn áhrifaríkasta hvíldarstað á Vestfjörðum, því þreytan og stressið hverfur í heita vatninu og hreina loftinu.
Íslensk ÚtgáfaEnglish Version

Upplýsingar um dvöl í Reykjanesi

Hér getur þú fræðst um starfsemi Ferðaþjónustunnar, skoðað myndir af aðstöðunni í Reykjanesi og kynnst staðnum og nágrenni í máli og myndum.



rnes.is  .is 

Tölvupóstur
Ferðaþjónustan Reykjanesi
Sími:456-4844 Símbréf:456-4845

Heim           Um Reykjanes           Staðsetning           Samband           Ferðamáti